Feeds:
Færslur
Ummæli

Tacx Virtual Flow

Að eignast nýtt dót er góð skemmtun. Eftir tveggja mánaða umhugsun ákvað ég að fjárfesta fyrir elliárin í tækniundrinu Tacx Flow sem fæst í Tri.is við Suðurlandsbraut. Þar á bæ gapa menn enn yfir óvæntri roksölu á þessu tæki sem upphaflega átti að vera upp á punt í búðinni. Nú eru tvær stórar sendingar uppseldar og gaman að heyra afgreiðslumenn segja undrandi: “Við þekkjum ekki einu sinni suma sem keyptu sér.” Samt hafa þeir góða sýn yfir hjólaheiminn.

Mín þarfagreining er þessi: Ég hef verið latur að hjóla á gamla trainernum í bílskúrnum og þótt æfingarnar einhæfar. Ég átti þrekhjól og seldi það og ætlaði á tímabili að kaupa gott spinninghjól en sé fram á að geta notað Tacxa 5-6 mánuði á ári. Í morgun hjólaði ég eina af sýndarbrautunum með ótal brekkum og þar sem tækið hermir eftir aðstæðum voru þetta mikil átök svona á fyrstu æfingu eftir langt hjólahlé og svitinn lak á gólfið. Kötturinn horfði stóreygur á mig og sleikti stöku dropa.

Of langt mál yrði að lýsa öllu því sem búnaðurinn býður upp á. Sjón er sögu ríkari. Ég lít á þetta sem fjárfestingu til tíu ára hið minnsta og sleppi bensínkaupum sem verðinu nemur. Þetta er rakið dæmi og gengur upp.

Þetta varð líka góður dagur. Hjól í morgun og skokk seinnipartinn. Svona á þetta að vera. Mér líður vel.

 

Þessi fallegi dagur…

Þótt færslan hefjist á tilvitnun í Bubba Morthens, kemur hann ekki frekar við sögu. Þessi dagur var einn af þeim sem fer í safnið Góðir Dagar, því eftir leiðinda vikur er hálkan farin og við Sveinn gátum hlaupið eins og okkur hentar best því spyrnan var góð og veðrið gott. Við fórum frá SB út í Garðabæ, hittum fyrir spræka félaga okkar, þar af einn með hund, og voru áhöld um hvort hundurinn eða eigandinn hefði stjórnina í þeim samskiptum.

Við héldum sem leið lá út á Álftanes, að Garðaholti og seppi róaðist þegar á leið, skokkaði létt við hlið eigandans en við reyndum eftir megni að halda rúmlega 5 mínútna tempói því þetta átti að vera róleg æfing. En þegar vorblíða er í lofti er erfitt að hemja sig og okkur leið prýðilega að Hrafnistu þar sem leiðir skildu og við félagar fórum heim en Garðbæingar sneru við og lokuðu sinni lykkju. Okkar heimsprettur var að vanda frekar móður og hraðinn eftir því en rúmlega 15 kílómetrar lágu þegar komið var í hlað.

Eftir baðið er skrokkurinn nokkuð góður  og vellíðan í hámarki. Þess vegna er þetta Góður Dagur.

Snjómokstur og sund

Þessa vikuna hef ég mokað snjó alla daga nema í gær þar sem rigningin sá um hreinsunina á bílastæðinu. Þetta er góð þrekæfing og veitir ekki af fyrir sundið sem einkennist nú af löngum settum þar sem Mladen vill auka úthaldið hjá mannskapnum. Þetta var erfitt fyrst en hefur lagast og æfingin í gærmorgun (föstudag) var sú besta því ég hélt miklu betri takti í sundtökunum. Löng og djúp tök eru málið og þá eykst hraðinn um leið.

Hlaupin eru ekki fyrirferðarmikil í hálkunni og slabbinu en meðan maður nær 50 einingum á viku er ég sáttur. En vegna heitstrenginga fyrir sumarið er ekkert annað í stöðunni en að hefja æfingar. 12. -13. júlí verður þrekraunin háð og gæti tekið allt að 20 tíma. Nánar síðar.

Hoppípolla

Loksins fór hálkan og þrátt fyrir þétta rigningu fór ég út í rífandi góðu skapi og þræddi götur í Hafnarfirði því á gangstéttum og stígum voru lúmskir hálkublettir. Ég hrasaði þar nokkrum sinnum en bjargaði mér með alkunnri ballettfimi minni og var eftir það í félagsskap tillitssamra bílstjóra. Ekki vantaði pollana sem ég hætti að forðast eftir hálftíma og reyndi að stappa í sem flesta, enda þá orðinn svo blautur að ekki munaði um eina gusu enn. Samt var þetta gaman því spyrnan var góð og ég hélt fínum hraða allan tímann.

Samloka á nýju ári.

Ég kvefaðist auðvitað í Gamlárs, svitnaði mjög mikið og var þungur og mæðinn allan tímann, sennilega með ketsvíma á lokastigi. Hvíldi í þrjá daga eftir það en bætti upp letina með samloku í dag. Hjólaði í 50 mínútur í hádeginu og hljóp svo í 75 mínútur í frábæru færi seinnipartinn. Veðrið eins gott og hægt er að hugsa sér á vetri, frostið hæfilega mikið til að gera stígana stama og ekki vottaði fyrir hálku. Svona mega allir dagar í vetur vera mín vegna.

Annað kvöld fer ég með Torben, Karen og mökum í ÍSÍ hófið. Þar verður gott að borða og skemmtilegt fólk að spjalla. Nóg hef ég skrifað um örlög eldhúskollsins sem íþróttamaður ársins að mati íþróttafréttamanna fær og reikna ég með að verða sannspár.

Gamlárshlaupið 2011

Ég hafði engar væntingar fyrir hlaupið aðrar en að ná undir 50 mínútur. Æfingar haustsins hafa verið lausar við spretti og hvíldardagar of margir til að hægt sé að gera einhverjar kröfur um ofurtíma. En aðalatriðið á þessum degi er að hitta félagana, heilsa og glettast, fá harðsperrur í munnvikin, draga sem flesta úr fjölskyldunni með sér og hlaupa síðan eins og vindurinn. Þar sem nú var næstum logn, gekk þetta allt upp.

Ég hef engar sprettæfingar tekið í haust, bara verið á dólinu og þungur eftir áttíðina og því var stefnan sett á 52 mínútur sem ég hefði verið sáttur við. Lagði þungur af stað og stóð á öndinni mest alla leiðina en leið aldrei svo illa að til greina kæmi að hægja á. Sennilega fór ég líka of hratt af stað en eftir 5 km var hraðastillirinn kominn í lag, settur á 5 mínútna tempó og þá þarf maður ekkert að hugsa.

Við Flosi kláruðum saman á 49.45 og vorum mjög sáttir enda farnir að reskjast örlítið en það þýðir lítið að veifa hækkandi aldri þegar félagi Sigurjón er nálægt. Hann er okkar fyrirmynd í þessum efnum. Það var líka gaman að geta dregið bæði fullorðnu börnin með og tengdasoninn og höfðu þau öll mikið gaman af, komu sér á óvart með góðum árangri og þá er næsta víst að þau mæta í fleiri hlaup í vetur, vor og sumar. Yngsti var fulltrúi barnabarnanna og fékk að eiga medalíuna. Hann varð líka fjögra ára í gær og finnst hann orðinn stór.

Ég fer bjartsýnn inn í nýtt ár. Janúar verður helgaður æfingum til að sjá hvað skrokkurinn þolir. Eftir það tek ég ákvörðun um framhaldið.

Sundknattleikur

er góð íþrótt fyrir sundmenn með áhuga á handbolta. Á morgunæfingunni fékk ég staðfest einu sinni enn að þetta er ekki íþrótt við mitt hæfi, enda er handbolti næsti bær við Yfir eða Sto. Í skotbolta gat ég aldrei neitt. Því tróð ég marvaðann, prófaði að vera í marki, fékk ágætis hreyfingu út úr þessu en varði eitt skot af fimm. Mitt lið tapaði 12-1.

Við gerum þetta aftur á föstudaginn. Spurning að mæta og synda og fá eitthvað út úr æfingunni.

Á meðfylgjandi mynd er verið að drekkja sóknarmanni.

Hálkan

Ég fór út í gær enda lokkaði notaleg snjódrífan og 2 stiga frostið. Einn á ferð og á götunni lengst af, því þar var færið best. Þegar jólakalkhúnninn situr rasssíður í vömbinni verður að svæla kvikindið út áður en hann gerir sér hreiður.  Á stígnum við höfnina voru hjón á gangi og fór hún hraðar yfir. Sennilega borðað meira en hann í gær.

Á bakaleiðinni valdi ég göngustíginn hér milli hverfanna og rakst á Unnar við mokstur af bílastæði. Hann varaði mig við mikilli hálku og það stóðst. Eftir 100 metra tók hálkan völdin og ég rann stjórnlaus niður í grasið og valt þar um koll. Þetta endurtók sig tvim sinnum þar til mér fannst nóg komið og fór á milli húsa yfir á umferðargötu. Þá var allt í sómanum. Þetta tók 70 mínútur.

Þorláksmessusundið 2011

Með þessari tímamótafærslu boða ég betri tíð í færslumálum mínum.  Þótt æfingar haustins hafi gengið brösulega, einkum vegna eymingjaskapar míns og linku, þá var ég svo heppinn að hitta Bibbu járnsystur mína yfir kaffinu að loknu sundinu og las hún rækilega yfir hausamótum mínum. Með orð hennar syngjandi í eyrunum fór ég í vígahug heim, hundskammaði köttinn fyrir almenna leti og spiksöfnun og sór að æfa eins og maður frá og með þessum degi. Nú tek ég Stein á þetta.

Þorláksmessusundið var annars gaman. Ég var á braut með Gunna Stefáns og Magnúsi R, Sigga Ingvars og tveimur stúlkum sem voru báðar frekar hraðsyndar og stungu okkur af. Ræst var með 10 sek bili og ég náði Magnúsi strax á fyrstu 100 og fór fram úr en hann hékk í mér eftir það. Sennilega hefði verið nær að tempra sig. Við vorum í einum hnapp lengst af, náði Gunnari eftir 600 og síðan einum enn, man ekki hvað hann heitir, en eftir það héldum við hópinn. Lokatíminn varð 29,30, með startleiðréttingu, örlítið verra en í fyrra en samt nógu góður tími til að fagna.

Það var gaman að hitta hresst fólk í kaffinu eftir sundið. Einar Vald viðraði hugmyndir sínar um Laugarvatnsþrautina með Þingvallaívafi (áhugasamir hafi samband við hann) og taldi einboðið að safna framkvæmdaliði. Þetta verkefni bíður eftir hugsjónafólki. Bibba heimtaði að ég færi með henni til Mexíkó og Ásgeir plöggaði Mont Blank einu sinni enn í mín eyru. Ég fór heim með fullan haus.

Þetta verða góð jól.

Ef mig skyldi kalla

Hér hefur ekkert verið skrifað lengi. Þetta á að heita dagáll hreyfingar og heilsubótar en stendur varla undir nafni. Ég, ef mig skyldi kalla, næ oftast að gera eitthvað 5 daga vikunnar og þar sem stóra eldhúsinnréttingarmálið er í höfn, þarf ekki lengur að smala smiði, steingervingum og rafvirkja til verka. Almenn hreyfing er skráð hér og oft litlu við hana að bæta.

Planið til áramóta er svona: Sundæfingar á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Hlaup á mánud, þri, fim og lau. Mjög sennilega hvíld á sunnudögum. Stóri Skotti verður sennilega settur upp í bílskúrnum á sinn spólurokk svo maður geti hjólað eitthvað inni ef ekki viðrar til útiveru. Eftir gamlárshlaupið byrjar nýtt tímabil á nýju ári með nýjum markmiðum.

Af öðru: Kötturinn er feitur.

Older Posts »

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.