var í morgun með Bjarti/3SH og var hjóluð nesjaleið að Ánanaustum og sama leið til baka. Þetta er umferðarlaus leið og hentug til hjólreiða. Ég fann fljótlega, þrátt fyrir langa upphitun, að þetta yrði enginn sprettur hjá mér og var aftastur allan fyrri hlutann, að frátöldum kafla þar sem ég fór á undan vegna stopps [...]
Archive for mars, 2011
Fyrsta útihjól ársins
Posted in Uncategorized on mars 27, 2011 | Leave a Comment »
Vikan sem var
Posted in Uncategorized on mars 26, 2011 | Leave a Comment »
Baunasúpuvikan kom og fór hér á bæ og þessi vika var helguð hafragraut í ýmsum myndum, einkum þó með ýmsum ávöxtum, ferskum eða þurrkuðum. Sá sem eldar fyrir einn, gerir ekki miklar kröfur, aðallega um saðningu og kötturinn er alltaf mættur til að sníkja og fær stundum að sleikja innan skálina. Ég veit að það [...]
Hver borgar RÚV núna?
Posted in Uncategorized on mars 19, 2011 | Leave a Comment »
Nokkuð er um liðið síðan ég hnýtti í RÚV fyrir íþróttaumfjöllun. Vissulega eiga menn þar á bæ sína spretti en einn af þeim merkilegri er núna á skjánum. 14:00 til 16:30 er Framhaldsskólamót í innanhússknattspyrnu.Sumir kalla þetta Futsal en þetta er innanhússbolti, eins og ég lék á sínum tíma með sveittum jafnöldrum mínum í íþróttahúsi [...]
Stundum hendist á munum
Posted in Uncategorized on mars 19, 2011 | Leave a Comment »
er austfirskt máltæki sem á vel við þessa viku hjá mér. Mánudagur og þriðjudagur fóru í magakveisu, sem var óvænt þannig séð, en ég virðist hirða allar pestir sem eiga leið hér um hlaðið og fyrir vikið er ég ánægður með hvern dag sem ég get æft skikkanlega. Vegna pestanna hef ég komið mér upp [...]
Baunasúpa fyrir vikuna
Posted in Uncategorized on mars 13, 2011 | Leave a Comment »
Ég er latur að elda fyrir mig einan, sýð þó hafragraut handa okkur kettinum á morgnana en er í ýmsu ávaxtajukki þess á milli. Eftir sundið í gær eldaði ég þó vikusúpu úr baunum. Uppskrift: 1 poki gular baunir-500 gr. 2 laukar skornir 1 pk gulrætur skornar 1 bréf af beikoni 250 gr, niðurskorið. 1 [...]
Langur laugardagur
Posted in Uncategorized on mars 12, 2011 | Leave a Comment »
byrjar snemma morguns með rist og tei og svo tínir maður utan á sig hlaupaspjarir, fer í tvennt af öllu því nú var níu stig á mæli hér við Sædýrasafnið og eins gott að eiga eðalgóðar nærbrækur. Það brakaði í snjónum og kötturinn hryllti sig í stofuglugganum þegar ég fór. Þegar frostið er mest, langar [...]
Góð sundæfing
Posted in Uncategorized on mars 9, 2011 | 1 ummæli »
er þegar maður hefur náð að borða og drekka eitthvað fyrir æfingu eins og ég í morgun. Nú finnur maður að þrátt fyrir veikindin hefur formið haldið sér, að frátöldum hlaupunum, en þar er ég frekar stífur og á eftir að ná upp hraða og þoli. Annað gengur vel. Í morgun var afburða góð sundæfing. [...]
Stórmyndin 2011
Posted in Uncategorized on mars 6, 2011 | Leave a Comment »
Félagi Hákon Spielberg eða Hákon Coppola (það á eftir að ákveða það) hefur sent frá sér trailer á fyrstu stórmynd ársins. Mikil eftirvænting ríkir í samfélagi þríþrautarfólks og heyrst hefur af pöntun á rauðum dregli, ráðningu tískurýnis, stórinnkaupum á sælgæti fyrir frumsýninguna og er þá fátt eitt talið. Fylgist með. Teljið niður.
Hálfsex
Posted in Uncategorized on mars 5, 2011 | Leave a Comment »
Ég vaknaði óvenju seint í morgun, rétt fyrir hálfsex. Mér finnst almennt gott að vakna snemma og geri það alla jafna tvisvar í viku til að fara í morgunsundið hjá 3SH en undanfarnar vikur hef ég vaknað milli 4 og 5 alla morgna til að vinna eða æfa. Samt er ég ekki kvöldsvæfari en venjulega [...]
Góður
Posted in Uncategorized on mars 2, 2011 | 1 ummæli »
Ég er orðinn góður. Ég hlýddi lækninum, hvíldi í sjö daga, en síðustu tvö dagana var virk hvíld. Á mánudaginn fann ég að lungun voru góð og síðan hef ég æft tvöfalt og líður vel. Sundæfingin í morgun var meiriháttar, að vísu vantaði smá upp á úthaldið í langa settinu en það kemur. Annars er [...]