Ég er latur að elda fyrir mig einan, sýð þó hafragraut handa okkur kettinum á morgnana en er í ýmsu ávaxtajukki þess á milli. Eftir sundið í gær eldaði ég þó vikusúpu úr baunum.
Uppskrift:
1 poki gular baunir-500 gr.
2 laukar skornir
1 pk gulrætur skornar
1 bréf af beikoni 250 gr, niðurskorið.
1 stór rófa -skorin og soðin í öðrum potti.
Mikið vatn, því annars brennur við.
Soðið í hálfan annan tíma, HRÆRT reglulega í pottinum og bætt á vatn ef vill. Óþarfi að krydda því beikonið og gulræturnar gefa keiminn. Soðnu rófurnar eru settar út í að lokum, þær má mauka.
Geymist í ísskáp út vikuna. Borðað eftir lyst, má hita í örbylgjunni.
Kötturinn fékk baunaslettu á undirskál og fúlsaði ekki við.
