Héri er hlaupari sem tekur að sér að fylgja félaga sínum (eða félögum) gegnum hlaup á ákveðnum hraða. Oft brýtur hérinn vindinn, axlar drykkjarflöskur og fleira fyrir félagann, segir honum spaugsögur og lýgur að honum öðru hveru að nú séu bara nokkrir kílómetrar eftir.
Það er gott að vera héri. Allir ættu að prófa það einhvern tíma.
Stefnuskrá Hérafélagsins
1. Öll dýrin í skóginum eru vinir en hérinn er langflottastur.
2. Héri tilkynnir sínu fólki hlaupaáætlun viðkomandi hlaups og leggur sig allan fram við að halda henni.
3. Héri er hlynntur drykkjuskap á drykkjarstöðvum og brýnir fyrir sínu fólki að vökva lífsblómið á leiðinni.
4. Héri skal hvetja sitt fólk til dáða innan skynsemis-og siðsemismarka.
5. Hérinn veit að skjaldbakan kemst þangað líka.
Hératoppurinn: Skv. óformlegri könnun ritarans. Bætum lögum í safnið.
Keep on running
Áfram veginn….
Við förum bara, förum bara fetið
Eye of the tiger
Run to the hills…
Baráttusöngur hérafélagsins
Lag: Sjá dagar koma….
Ég sé í fjarlægð brautarverði bíða
og bráðum kemur drykkjarstöðin mín.
Ég veit að tíminn lengi er að líða
en langar samt í meira endorfín.
Í þúsund skrefum þjáning mín er fólgin
og þreytuverkir lagast ekki í bráð.
þótt hásinin sé hrikalega bólgin
þá hættir enginn fyrr en marki er náð.