Hér eru tíndar saman færslur um orkubita fyrr og nú:
Nú hækkar sól á lofti og brátt styttist í Laugaveginn og önnur langhlaup og þá er við hæfi að rifja upp orkubitauppskriftina góðu frá Gunnlaugi en hann hafði hana frá LöbarLarson hinum sænska.
3 dl rjómi, 3 dl sýróp, 3 dl sykur.
Þetta er soðið við vægan hita í potti í 30 mínútur til að búa til sýrópslellu. Hræra skal öðru hverju.
Á meðan eru 21 dl af Bónusmúslí sett í skál. Ekki sakar að strá salti yfir eftir smekk, ef mönnum hættir til að missa mikið salt á hlaupum. Bökunarplata tekin til og smjörpappír settur á hana.
Nú er sýrópslellunni hellt yfir múslið og hrært vel. Mótaðar eru lengjur og lagðar á smjörpappírinn og hnuðlaðar vel með hnefum til að þjappa þær. Þetta er látið kólna, skorið í hæfilega bita og geymt í frystinum. Svo er tilvalið að pakka bitum í álpappír, setja í drykkjarbelti og muðla á leiðinni.
Kostnaður við þessa uppskrift er um 600 krónur. Úr henni fást um 50 myndarlegir bitar. Miðað við að orkustöng í búð kostar 220 krónur, þá er sparnaðurinn augljós.
Siðan sendi Dagur inn þessa viðbót:
“Eðal orkubitar. Fannst uppskriftin full stór þannig að ég helmingaði hana. 1 1/2 dl. sýróp, mjólk, sykur + 7 dl. harðmeti.
Lagfærði uppskriftina aðeins, notaði sojamjólk í stað rjóma, hrásykur fyrir sykur og agave síróp frá Himnesk Hollusta (Sollu) sem síróp. Einnig notaði ég Granóla múslí og blandaði með 1/3 salthnetum. Þegar ég var búinn að þjappa smurði ég yfir með 100 gr. af 70% súkkulaði.
Helmingurinn hvarf eins og dögg fyrir sólu, restina náði ég að pakka í frystinn fyrir seinni tíma.”
Athyglisverðar tilraunir og ekki laust við að útgáfa Dags sé hollari.
Þetta skrifaði ég fyrir löngu hjólaæfingarnar sumarið 2010.
Fyrir langa túrinn á sunnudaginn bauð Steinn orkubita frá Benna bakara. Uppskriftina hafði Benni fengið hjá Gunnlaugi sem fann hana hjá Löbar-Larsson, sænskum langalanghundi. Uppskriftin með viðbótum er hérna.
Ég át einn bita frá Benna og fannst hann ágætur en súkkulaðið var frekar mikið fyrir minn smekk. Framtakið er gott og auðvitað tekur maður jákvætt í þetta hjá Benna. Hinu er ekki að leyna að 300 krónur fyrir hvern bita er frekar dýrt, miðað við kostnaðinn af því að búa bitana til sjálfur. Sá sem nennir að hita sýróp í potti og blanda músli, döðlum og rúsínum í skál, getur búið til svona bita fyrir 30 krónur á bitann, miðað við meðalhófsuppskrift.
Nú er sumarið að skella á okkur með löngum hjólatúrum og stuttum. Ég fór út í morgun og hjólaði í tvo tíma og þá var gott að geta fengið sér smá orkuskot eftir klukkutíma, með djúsblöndunni. Fyrir 3-4-5 tíma túra, eins og Kaupinhafnarfarar verða að hafa á sínu æfingaplani, duga ekki minna en 1 góður biti fyrir hverjar 45 mínútur á hjólinu ásamt nægum vökva. Maður verður nefnilega að æfa sig í að borða á löngum æfingum, máta magann við ýmislegt orkuríkt, finna hvað fer vel og hvað ekki. Þá er gott að hafa æft það vel hér heima áður en haldið er í víking.
Á hjólaleiðinni í Kaupmannahöfn verður margt í boði og eru drykkjar/matarstöðvar staðsettar á beygjum og snúningspunktum þar sem maður þarf hvort sem er að hægja á sér. Þar er löng röð borða og sjálfboðaliða með flöskur og brúsa. Með lagni er hægt að grípa tvo brúsa á hverri stöð og einn-tvo orkubita. Þ.e. maður kastar tóma brúsanum í tunnuna rétt áður en komið er að stöðinni, grípur brúsa og setur í statívið, grípur orkubita og þess háttar og setur í bitatöskuna á stönginni, grípur seinni brúsann og tæmir hann í stýristankinn og ef röðin er nógu löng, er hægt að ná þeim þriðja og þamba á fyrstu 100 metrunum út frá stöðinni.
Síðastliðið sumar bjó ég til eina 100 orkubita og þeir dugðu í þrjá mánuði. Heildarkostnaður var um 30 krónur á bita, alls 3000 krónur. Ég saxaði döðlur og rúsínur út í og splæsti í 70% súkkulaði. Bitarnir urðu betri fyrir vikið en auðvitað dýrari.
Munurinn á 3000 krónum og 30 þúsund er nógu mikill til að ég nenni að dunda við orkubitagerð eina kvöldstund.