Ráð við kvefi
Þessi ráð hafa borist til ritara FM eftir ýmsum leiðum og hefur hann prófað þau flest. Þeim er ekki raðað eftir styrkleika eða áhrifamætti, heldur í sömu röð og þau bárust. Njótið heil.
1. Í lopapeysu undir sæng, drekka stórt glas af viskí, könnu af heitu tei, breiða upp fyrir haus og reyna að sofna.
2. Klæða sig vel, sérstaklega til handa og fóta, fara út að hlaupa þar til svitinn hefur næstum gegnumbleytt gallann, þá beint inn og í heitt bað. Sérstaklega skal gætt þess að láta ekki slá að sér. Sama gagn gerir að fara í ræktina og vera á þrekhjólinu þar til kominn er pollur á gólfið. Þessar tvær aðferðir eru vinsælar hjá ritaranum.
3. Stórt glas af koníaki.
4. Sítrónute í miklu magni, hugsanlega hálsbrjóstsykur til að mýkja raddböndin, vítamín og fjörefni eins og lystin leyfir.
5. Hækka hitann á svefnherbergisofninum, fá makann með sér undir sæng í nokkra klukkutíma og taka vel á. Þetta er af kunnugum talin ein skemmtilegasta leiðin að losna við kvef. Munið að hafa svaladrykki á náttborðinu.
6. Blanda Leppindufti í heitt vatn og drekka. Mikið. Ótrúlega hressandi.
7. Sofa í hreinum sokkum. Sólhattur og C vítamín í stórum skömmtum. Lýsi alla morgna.