26. október.
Undarleg er vor rulla
í þessu jarðlífi.
Annaðhvort er það drulla
eða þá harðlífi. (höf. óþekktur)
23. október
Hollt er hlaup
helst alla daga
styrkir þó staup
sterkt að fá í maga
20. október.
Rifjuð var upp gömul hringhenda um hor.
Einatt bora í mitt nef
eftir sora og drullu.
Plagar vorsins kuldakvef
kyngi hor og drullu.
Og hana nú.
Á leirlistanum var áskorun vikunnar að yrkja vísu með götunafni.
Þetta er mitt innlegg, byggt á gamalli minningu.
Vetrargleðin var mér grimm
víni í mig dældi.
Bak við Fjarðargötu fimm
fann ég skjól, og ældi.
Líka er gott að hafa þessa í huga:
Margur hratt úr hlaði reið
og hugði veginn greiðan.
Þegar fór að lengjast leið
lúnum hesti reið hann.