Sunnudagur

astjorn_pan_2008„Söndagen er til að kneppe i“ sagði sögupersóna í smásögu eftir Synnöve Söe en fyrir hádegi er enginn tími fyrir svoleiðis þrekæfingar þótt góðar séu. Ástjarnarhringurinn með útúrdúrum er mitt eftirlæti og ég fór rólega fyrri hlutann því ég komst einfaldlega ekki hraðar vegna andstyttni og mæði en þegar á leið og slaknaði á þindinni, jókst hraðinn þokkalega og endaði á hlaðspretti.

Sumarfrísbílífi er formlega lokið og við taka daglegar æfingar. Sælgæti er bannvara. Sykur er ógeð. Vegurinn til vítis er varðaður góðum áformum.

Færðu inn athugasemd